19.2.2008 | 21:50
Dúxinn í tossabekknum
Álit mitt á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur hefur vaxið að undanförnu. En ég velti því fyrir mér hvort henni finnist útkoman úr þessari könnun vera hvetjandi til að standa í valdabaráttu. Hvað þá að þiggja það úr hendi Vilhjálms að setjast í oddvitasætið. Metnaðarfull manneskja hlýtur að vilja fá lýðræðislegra umboð heldur en hann getur boðið upp á.
Þess utan minnist ég þess ekki að hafa séð menn guma af því að dúxa í tossabekk.
Flestir vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góður punktur!
Dofri Hermannsson, 19.2.2008 kl. 22:22
Svo mörg voru hin vinstri orð/Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 19.2.2008 kl. 23:30
Verst hvað hún er ferlega leiðinleg gaggandi skrækróma.
JOZ (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 00:39
Skemmtileg pæling.
Ebba (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 21:19
Ha,ha,...afar góður punktur og góð pæling hjá Gunnari..
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 20.2.2008 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.