Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Einu sinni bloggvinur ávallt bloggvinur ?!
Sæll aftur Sigurður ! Meðan ég reit fyrri færslu (f.neðan) rann innskráing mín út! Kv.,KPG.
Kristján P. Gudmundsson, sun. 27. nóv. 2011
Einu sinni bloggvinur ávallt bloggvinur ?!
Þar sem ég á leik,ætla ég að leia eftirfarandi leik : Vilt þú gerast bloggvinur minn -aftur ? Ágæti Sigurður, ég veit , að þú veltir spurningum sem öðru fyrir þér, áður en þú svarar eða lætur til skarar skríða. Með góðri kveðju, KPG.
Kristján P. Guðmundsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 27. nóv. 2011
Netfang
Sæll Sigurður Hvar gæti ég fundið netfangið þitt? Er möguleiki á því að þú sendir mér það á ifo@simnet.is kveðja, Ingibjörg
Ingibjörg Friðriksdóttir, fim. 26. feb. 2009
Spilling
Góð athugasemd Sigurður. Hér er spillingin ljós lifandi. Hve lengi látum við þetta ganga svona? Kveðja Flemming Jessen
Flemming Jessen (Óskráður), þri. 17. apr. 2007
Kveðja
Sæll Sigurður. Ég rakst á bloggið þitt í gegnum mbl.is Áhugaverðar pælingar oft á tíðun. Kv. Gréta
Gréta (Óskráður), mið. 4. apr. 2007
Kveðja...
...og til hamingju með færsluna dags. 21.03.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, fös. 23. mars 2007
kveðja
gott komment hjá þér - og fín hugmynd. Ef við værum í Frakklandi yrði til fjöldahreyfing, en því miður erum við á ÍSLANDI og þess vegna mestar líkur á því að málið deyji bara drottni sínum, eins og öll hin
Sjöfn Kristjánsdóttir, mán. 26. feb. 2007
Þökk fyrir boðið.
Því miður kann ég ekki enn þá að senda mynd úr tölvunni minni. en þaðmun úr rætast, nær sonur ninn,Tómas, kemur til skjalanna.Hann er mikill Makkari að upplagi , en því miður býr hann í Svíþjóð, svo að ég fæ þetta makkerí í smáskömmtum. Þetta stendur allt til bóta, vona ég. Ég er 72 ára gamall, lyfjafræðingur að mennt, kvæntur í 41 ár. Ég var apótekari í Neskaupstað í 9 ár, í Borarnesi 12 ár og í Reykjavík 10 ár (Vesturbæjarapótek). Ég á dóttur, sem heitir Ásta Júlía. Hún er apótekari á Siglufirði ( l4 ár). Ég og kona mín, Kristín Ingiríður Hallgrímsson, eigum lögheimili á Siglufirði. Þótt við séum bæði Reykvíkingar, slá hjörtu okkar beggja best úti á landsbyggðinni! Ég hefi mestan hug á að taka upp hanskann fyrir þá, sem standa höllum fæti. Mér finnst margir staðir í landinu okkar vera í vörn gegn þeim, sem mest hafa grætt á frjálshyggjunni og ég er þess vegna íhaldssamur að þessu leyti. Ég er hins vegar ekki lengur flokksbundinn og ég hefi reyndar aldrei verið rígbundinn neins- staðar. Konan mín er aftur á móti djúpblátt íhald enda ættuð úr gamla Vesturbænum og KR-ingur að auki eins og Björúlfur skólabróðir hennar, úff! Að endingu þakka ég þér gott boð. Kveðja,KPG
Kristján P. Gudmundsson, fös. 16. feb. 2007
Gaman að hitta einhvern að austan
En er þú frá Selfossi eða Rangárvallasýslu?
Fishandchips, sun. 11. feb. 2007
Til hamingju með bloggið!
Gott að sjá þig hérna. Haltu þínu striki !
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, sun. 4. feb. 2007