6.2.2007 | 12:56
Það kostar þá kr. 2.000 að heimsækja Kerlingafjöll eða Hveravelli
Ég get ekki að því gert að ég hef nokkra vantrú á þessu viðskiptamódeli og myndi aldrei leggja pening í fjármögnun. En skv. gögnum Vegagerðarinnar var svokölluð ársdagsumferð við Öxnadalsá 909 bílar á sólarhring árið 2005. Það er því ljóst að forsvarsmenn hins nýja Kjalvegar ætla sér að fá meirihlutann af þeirri umferð inn á Kjalveg. Þess utan jafngildir gjaldtakan því að selt verður inn á einu leiðina að Hvítárvatni, Hagavatni, Kerlingarfjöllum og Hveravöllum. Það finnst mér út í hött!
Vilja hefja undirbúning nýs vegar yfir Kjöl í einkaframkvæmd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ja hérna... það er ok að borga vegtolla en það má þá halda verðinu innan skynsemismarka!
Olina Kristinsdottir Gulbrandsen, 6.2.2007 kl. 17:26
Mér finnst hreinlega að við ættum ekki að þurfa að borga neitt.... Það eru til nógir peningar til að gera þetta hjá þeim sem eru í þessu félagi... því ekki að leifa okkur meðaljóninum að njóta einhvers af því...??
Margrét Ingibjörg Lindquist, 6.2.2007 kl. 18:16
þetta er náttúrulega bara bullverð!
Bragi Einarsson, 6.2.2007 kl. 19:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.