15.2.2007 | 23:17
Kannski er besta ráðið við þessum vanda að draga úr barneignum
Ef marka má hefðbundin viðbrögð. Þá reyna menn ekkert til að stöðva upptök ryksins, en finna sér krókaleiðir til að slá á einkennin.
Börnin ekki út suma daga vegna svifryks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er allavega fremur ólíklegt að núverandi stjórnarmeirihlutar - hjá ríki og borg - geri nokkuð í málunum. Hjá þeim er einkabílinn guð og ekkert má gera til að stuðla að öðrum samgöngumöguleikum fólks.
Ingibjörg Stefánsdóttir, 15.2.2007 kl. 23:38
Hef áhyggjur af barnabarni mínu. Leikskólinn hans er við umferðargötu og leikvöllurinn snýr að götunni.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 16.2.2007 kl. 01:27
já hætta þessari vitleysu - bara setja skírlífsbelti á lýðinn... hvað annað er hægt í stöðunni?
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, 16.2.2007 kl. 01:51
Hvernig ætli það sé, nú er ég ekki að mæla þessum vanda bót. En hefur ekki maðurinn ótrúlega aðlögunarhæfileika. Ég hef verið í nokkrum stórborgum til dæmis Mexícó citý sem sennilega er með menguðustu borgum heims, þar sem hún lúrir reyndar hátt uppi en umkringd fjallahring. Þar er fullt af litlum börnum allstaðar. Það er ef til vill ekki bara svifryk en það liggur mökkur yfir borginni á góðum degi.
Ég var nýlega í Vín og nefið á mér og hálsinn var orðin fullur af einhversskonar ryki. Ég fæ alltaf svoleiðis þegar ég dvel í stórborgum. Held að það sé vegna þess að ég er dreyfbýlistútta og hef ekki myndað ónæmi fyrir þessu ryki.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2007 kl. 10:31
draga ú barneignum það er málið ..... færri börn til að hafa áhyggjur af í framtíðinni þegar allar þessar umhverfishryllingsspár rætast
Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2007 kl. 12:36
Víða erlendis er tekið á þessu svifryksvandamáli með því að spúla götur reglulega. Ef það ætti einhversstaðar vel við væri það hér á landi. Nóg vatn og til þess að gera auðvelt að minnka þetta eitthvað að minnsta kosti. Þó engir væru naglarnir væri samt talsverð mengun vegna þessa. Allt saltið sem ausið er á götur í snjó og hálku verður að ryki og þyrlast upp þegar götur eru auðar og frystir. Með reglulegum götuþvotti mætti ef laust bæta þetta eitthvað.
Halldór Egill Guðnason, 16.2.2007 kl. 14:32
Kannski er svifrykið eins konar óbein getnaðarvörn!
Sigurður G. Tómasson, 16.2.2007 kl. 19:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.