Afmælingar?

Síðustu 10 daga hef ég mætt í 7 afmælisboð.  Ég reið sjálfur á vaðið og bauð mínum nánustu í kaffi á afmælisdaginn minn.  Ég kann hins vegar ekki að halda upp á afmælið mitt og sannast sagna er mér ekkert gefið um samkomur þar sem ég er miðpunkturinn.  Ég er stórlega að spá í að skrópa í minni eigin jarðarför.  Ég vona hins vegar að það þurfi ekki að herma það upp á mig næstu áratugina.  En auðvitað er bara gaman að setjast niður með fjölskyldunni og gera sér dagamun.

Tæpri viku síðar varð sonur minn 9 ára.  Hann kann betur en ég að halda upp á afmælið sitt.  Tæplega 30 skólasystkin gæddu sér á pítsum og súkkulaðikökum en slógu að því búnu upp balli.  Júróvisjondiskurinn var spilaður nánast í botni.  Gestirnir sungu hástöfum og dönsuðu.  Ég sá ekki betur en að hver einasti krakki kynni vinsælustu lögin utan bókar.  Ein stúlka kom fram í eldhús og kvartaði undan eymslum í hálsi eftir sönginn og önnur kveinkaði sér í eyrunum eftir að einhver nærstaddur bekkjarbróðir tók undir með Eiríki Haukssyni í falsettu en var þá staddur nánast á eyrnasnepli bekkjarsystur sinnar.

Þriðja afmælisboðið var á laugardagskvöldið hjá félaga mínum Ágústi Ólafi Ágústsyni.  Ágúst kann líka að halda upp á afmælið sitt.  Hann fyllti samkomusalinn af fólki.  Ágúst fékk flottustu gjöfina sem ég veit um í þessari hrinu afmæla.  Hann fékk samþykkt á þingi baráttumál sitt um afnám fyrningarfrests á kynferðisbrotum gegn börnum.  En Ágúst hefur allt kjörtímabilið reynt að koma þessu máli í gegn.  Ágúst hefur notið í þessu máli öflugs stuðnings félagasamtaka og má nefna að samtökin Blátt áfram söfnuðu 23.000 undirskriftum málinu til stuðnings.  Ég vil óska Ágústi sérstaklega með það sem stjórnarandstöðuþingmaður gerir mjög sjaldan, - að sjá árangur af starfi sínu!

Ég var vart komin út úr samkvæminu hjá Gústa en ég datt inn í næstu veislu, en þá var komið að mágkonu minni að halda upp á fertugsafmæli sitt.  Hún var glaðbeitt og fyllti heimilið af vinum og ættingjum.  Eftir því sem leið á kvöldið sá ég ekki betur en að brosið breyddist sífellt lengra yfir andlitið.  Ég held að það hafi verið um 11-leytið ljóminn í andliti hennar náði því stigi að ég sá að hún er búin að láta taka endajaxlana, beggja megin og bæði í efri og neðri góm.  Ef ég þekki hana rétt þá er hún nú þegar orðin full tilhlökkunar fyrir fimmtugsafmælið, enda ekki seinna vænna, þar sem tíminn líður óstjórnlega hratt á þessum aldri.

Hvurnig er annars með þetta orðskrípi "afmæli".  Á það eitthvað skylt við mælingar?  Ef svo er, þýðir orðið að það sé verið að telja niður, afmæla, þó svo að talan hækki með fjölgandi afmælum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Er ekki verið að mæla af lífinu? Greinilega búið að vera mikið að gera í þessum bransa hjá þér og margra mánaða skammtur tekinn út á örfáum dögum. En er það ekki bara grín í þér að Eiki hafi farið í falsettu í laginu? :)

Jón Þór Bjarnason, 20.3.2007 kl. 18:23

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Til hamingju

Ester Sveinbjarnardóttir, 20.3.2007 kl. 19:44

3 Smámynd: Ester Júlía

Mæla árin kannski?   ....   Afhverju heita vettlingar vettlingar?

Ester Júlía, 20.3.2007 kl. 19:45

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Já, einmitt að mæla af. Til hamingju með afmæli þitt og sonarins.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.3.2007 kl. 19:49

5 Smámynd: Sigurður Ásbjörnsson

Takk fyrir hlýjar kveðjur sem og að slá af mér meinlokuna.

Sigurður Ásbjörnsson, 20.3.2007 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband